Rammaskipulag gömlu hafnarinnar - Fræðsluganga um svæðið og kynningarfundur

Haldinn verður kynningarfundur á rammaskipulagi gömlu hafnarinnar í Reykjavík laugardaginn 29. September. Kynningin hefst með göngu um hafnarsvæðið undir leiðsögn Hjálmars Sveinssonar formanns stýrihóps rammaskipulagsins. Gangan hefst við Hörpu klukkan 11. Kynningarfundurinn í Sjóminjasafninu Vík hefst klukkan 12.

Þetta er í annað sinn sem haldinn er kynningarfundur um rammaskipulagið, sá fyrri var haldinn í maí á þessu ári. Þá var líka efnt til göngu um svæðið sem gafst vel. Hátt í eitthundrað manns mættu í gönguna og á fundinn.

Rammaskipulagið sem kynnt verður á fundinum byggir á vinningstillögu arkitektastofunnar Graeme Massie Architects sem bar sigur úr býtum í opinni hugmyndasamkeppni um Gömlu höfnina sem lauk í desember 2009. Tillagan gerir ráð fyrir þéttri blandaðri byggð við höfnina og meiri sveigjanleika en fyrirliggjandi deiluskipulag á svæðinu.

Dagskrá fundarins

1) Hjálmar Sveinsson kynnir skipulagið.

2) Umræður

 

Markmið rammaskipulagsins er að gera borgina að hluta af höfninni og höfnina hluta af borginni. Byggt verður þétt hafnarhverfi við sjóinn, húsin standa nánast á hafnarbakkanum og göturnar teygja sig niður að hafinu. Við það opnast þægilegar leiðir niður að höfninni og sjónásar skapast út á sjóinn.

 

Svæðinu á milli Sjóminjasafns og Hörpu er skipt upp í fjögur hafnarhverfi sem kallast Vesturbugt, Suðurbugt, Miðbakki og Austurbakki. Hvert hverfi mun hafa sinn karakter en öll einkennast þau af fjölbreytni, aðlaðandi og skemmtilegum almenningsrýmum og greiðum leiðum fyrir fótgangandi vegfarendur og hjólandi.

 

Nýr bæklingur um Rammaskipulag fyrir gömlu höfnina (PDF 5MB).