Ráðherra og borgarfulltrúi í rusli

Framlag Fjölbrautaskólans við Ármúla til Nýtniviku var að etja saman ráðherra, borgarfulltrúa, kennurum og nemendum í að flokka rusl hratt og vel. 

Svandís Svavarsdóttir, umhverfisráðherra og Einar Örn Benediktsson, borgarfulltrúi, sem hljóp í skarðið fyrir borgarstjóra, mættu samhent og sigurviss til leiks. Tunnurnar sem flokka átti í voru sjö; pappír, fernur, ál, lífrænn úrgangur, skilagjalds rusl og spilliefni. Keppendum var heitt í hamsi og mikil samstaða og einbeiting var innan hópanna þriggja sem kepptu um fyrsta sæti. Nemendur lærðu að kapp er best með forsjá því þó tíminn væri bestur hjá þeim fengu þeir mörg refsistig fyrir ranga flokkun og vermdu því botnsætið. Ráðherra og borgarfulltrúi fengu hins vegar hrós fyrir góða flokkun en þau nýttu tímann ekki nógu vel svo þau höfnuðu í öðru sæti. Kennarar náðu flestum stigum í flokkuninni og stóðu því uppi sem sigurvegarar.  

Einar Örn undirstrikaði hvað það væri skemmtilegt að flokka og kenndi hvernig ætti ekki að flokka, s.s.  pítsukassa með pítsu. Svandís lagði áherslu á að best væri að þurfa að flokka sem minnst með því að draga úr neyslu og endurnýta það sem fólk á fyrir. 

Keppnina kynntu Bryndís Valsdóttir umhverfisfulltrúi F.Á. og Jónína Riedel, formaður umhverfisráðs skólans. Lið kennara skipuðu Úlfar Snær Arnarson og Guðrún Narfadóttir en í liði nemenda voru þeir Sigurður Þór Daníelsson og Benedikt Snær Gylfason. Dómgæsla var í höndum Sólkötla Ólafsdóttur og Jóhanns Berry úr umhverfisráði FÁ. 

Fjölbrautaskólinn Ármúla (FÁ) var fyrsti framhaldsskólinn til að fá Grænfána árið 2006 og hefur dregið fánann alls fjórum sinnum að húni. Litið er til skólans sem frumkvöðuls og leiðandi á þessu sviði. 

Nýtnivikan er samevrópskt verkefni sem hér er haldið í fyrsta sinn, Reykjavíkurborg tekur þátt ásamt umhverfisstofnun og Landvernd auk allra íbúa sem áhuga hafa á umhverfi sínu og framtíð lífríkisins. Á feisbókarsíður borgarinnar er í gangi skemmtileg keppni um best nýtta hlutinn auk þess sem bláa tunnan verður innan tíðar við öll heimili í borginni.