Pollapönkað Draumaland á lestrarhátíð
Haraldur F. Gíslason og Heiðar Kristjánsson, leikskólakennarar og Pollapönkarar sungu nýja nýja vögguvísu fyrir leikskólabörnin í Breiðholtinu í dag. Lagið nefnist Draumaland og var það flutt fyrir stóran barnahóp í Gerðubergssafni.
Þegar Halli og Heiðar höfðu flutt lagið með börnunum söng Marcin Cie?li?scy lagið á pólsku.
Reykjavík Bókmenntaborg UNESCO stendur fyrir Lestrarhátíð í Reykjavík en bókin Vögguvísa eftir Elías Mar er þar í brennidepli. Bókin höfðar meira til unglinga en ungra barna og því þótti tilvalið að þau myndu vinna almennt með vögguvísur enda er það í gegnum þær sem börn kynnast tungumálinu fyrst. Þeir Halli og Heiðar voru því fengnir til þess að semja nýja vögguvísu og fengu allir leikskólar borgarinnar hana senda á dögunum sem gjöf.
Foreldrar eru hvattir til þess að syngja vögguvísuna með börnum sínum og því er það ánægjuefni að hún hefur verið þýdd yfir á pólsku.
Það gerðu pólsku foreldrarnir Aleksandra Cieslinska og Marcin Cie?li?scy, Aleksandra þýddi vísuna og Marcin söng og tók hana upp.