PMT - foreldrafærninámskeið
Foreldrafærninámskeið (PMT) - fyrir foreldra 4 - 12 ára barna með væga hegðunarerfiðleika. Um er að ræða átta vikna hópnámskeið þar sem 10-14 foreldrar fá ráðgjöf frá PMT meðferðaraðila einu sinni í viku og vinna verkefni heima á milli tíma.
PMT stendur fyrir „Parent Management Training", sem er aðferð fyrir foreldra og aðra sem koma að uppeldi barna og unglinga. PMT stuðlar að góðri aðlögun barna og er því afar mikilvæg aðferð ef börn sýna hegðunarfrávik. PMT er þróað af Dr. Gerald Patterson, Dr. Marion Forgatch og samstarfsfólki á rannsóknarstofnuninni Oregon Social Learning Center (OSLC) í Eugene í Oregon í Bandaríkjunum. PMT byggir á sterkum grunni rannsókna sem sýna að aðferðin dregur verulega úr hegðunarerfiðleikum barna og unglinga og skilar mestum árangri ef unnt er að grípa snemma inn í og vinna með vandann á fyrstu stigum.
Námskeiðið er ókeypis. Nánari upplýsingar má sjá í meðfylgjandi bækling.
Næstu námskeið hefjast 27. febrúar og lýkur SSS, vikulega í átta skipti alls, tvo og hálfan tíma í senn, annað námskeiðið frá klukkan 13.15 til 15.45 og hitt frá 16.00 til 18.30.
Sálfræðingarnir og PMT meðferðaraðilarnir Hrund Þrándardóttir og Alda Ingibergsdóttir sjá um námskeiðið.