Perlan verði náttúruminjasafn

Borgarráð tók tillögu borgarstjóra um að heimila Reykjavíkurborg að ganga til samninga um kaup á Perlunni af Orkuveitu Reykjavíkur til umfjöllunar í morgun. Í tillögunni er Reykjavíkurborg einnig heimilað að ganga til samninga við ríkið um að það leigi húsið í allt að 15 ár og  komi þar upp náttúruminjasýningu. Að auki verður Reykjavíkurborg heimilað að gera breytingar á Perlunni fyrir allt að 100 milljónir króna gangi samningar við ríkið eftir. Tillögunni var frestað að beiðni D-listans.

Í greinargerð með tillögunni kemur fram að með kaupunum verði almenningi áfram tryggður aðgangur að Perlunni og umhverfi hennar, þó með þeim takmörkunum að selt verður inn á náttúruminjasýninguna. Með kaupunum gefst Reykjavikurborg tækifæri til þess að stjórna uppbyggingu og nýtingu svæðisins sem Perlan stendur á í Öskjuhlíð til framtíðar en nú er í gangi skipulagssamkeppni um Öskjuhlíðina á vegum skipulagsráðs Reykjavíkurborgar.

Í greinargerð starfshóps sem skipaður var um kaup Reykjavíkurborgar á Perlunni kemur fram að Perlan bjóði upp á frábæra möguleika til að koma upp náttúruminjasýningu. Gert er ráð fyrir að byggt verði milligólf í hluta byggingarinnar og opnað betur inn í hitaveitutankinn þar sem sögusýningin var til húsa.  Munu nauðsynlegar breytingar á húsinu kosta um 100 milljónir króna.

Jón Gnarr borgarstjóri segir að náttúruminjasýning í Perlunni sé fagnaðarefni fyrir landsmenn alla, ekki síst fyrir skólabörn og ferðaþjónustuna í borginni. „Þetta er frábært mál. Perlan er best komin í opinberri eigu á þessu fallega og viðkvæma útivistarsvæði. Ég vonast til þess að þarna verði blómleg starfsemi sem laði að innlenda sem erlenda gesti. Börn og unglingar fá þarna einstakt tækifæri til að auka víðsýni sína og fræðast um náttúru Íslands og Perlan mun fá göfugra hlutverk en hún hefur haft,“ segir borgarstjóri.

Heimild borgarráðs er bundin við að viðunandi leigusamningur um sýningu Náttúruminjasafns Íslands náist við ríkið og að væntanlegar leigutekjur muni standa undir kaupverðinu.

Perlan - greinargerð vinnuhóps.