Pappír er ekki rusl - Bláa tunnan byrjar vel á Kjalarnesi
Starfsmenn sorphirðu Reykjavíkurborgar gengu í síðustu viku á milli húsa á Kjalarnesi og kynntu bláu tunnuna og breytingar á sorphirðu. Íbúar á Kjalarnesi verða fyrstir í Reykjavík til að hefja almenna flokkun pappírs og umbúða með skilagjald frá heimilissorpi. Óheimilt verður að henda pappír og pappa í tunnur fyrir almennt heimilissorp á Kjalarnesi frá og með deginum í dag, 1. október.
Fjölmörg heimili á Kjalarnesi voru þegar búin að koma sér upp blárri tunnu fyrir pappír og pappa en margir nýttu sér tækifærið og pöntuðu bláu tunnuna þegar starfsmenn sorphirðunnar litu við. Dreift var bæklingi inn á öll heimili á Kjalarnesi um breytingarnar en þar kemur m.a. fram hvað má setja í bláu tunnuna en helstu flokkarnir eru dagblöð, tímarit, fernur, sléttur umbúðapappi og bylgjupappi. Forðast skal að setja pappír með matarafgöngum í bláu tunnuna en hirt verður úr henni á 20 daga fresti.
Íbúar í Reykjavík verða þó ekki skyldaðir til að fá sér bláu tunnuna því einnig er boðið upp á þann möguleika að fólk flokki pappírinn frá og fari sjálft með hann á grenndarstöðvar sem verða efldar verulega samhliða innleiðingunni. Endurvinnslustöðvar Sorpu taka einnig við pappír og pappa.
Pappírsflokkunin hefst á Kjalarnesi en síðan fylgja hin hverfin á eftir á mánaðarfresti. Bæklingur mun verða sendur inn á hvert heimili í borginni þar sem breytingarnar eru kynntar ítarlega. Íbúar um alla borg eru þó hvattir til að hefja flokkun pappírs strax enda er pappírinn verðmætt endurvinnsluefni. Hægt er að panta bláu tunnuna með því að senda tölvupóst á sorphirda@reykjavik.is eða með símtali í þjónustuver Reykjavíkurborgar í síma 4 11 11 11.
Sorpa sendir allan pappír sem safnast til Svíþjóðar þar sem hann er flokkaður enn frekar og endurunninn. Þess má geta að íbúar á höfuðborgarsvæðinu eru þegar mjög duglegir í því að flokka endurvinnsluefni frá heimilissorpi. Samkvæmt upplýsingum frá Sorpu fara nú þegar um 35.2% af úrgangi til efnisendurvinnslu og erum við engir eftirbátar t.d. Svía og Dana í þeim efnum. Með þeim skrefum sem nú eru stigin við flokkun pappírsefna getur þetta hlutfall orðið enn hærra en stefnt er að því að þegar öll hverfi í Reykjavík séu byrjuð að flokka muni 80% pappírsefna safnast.
Bláa tunnan kostar 7.400 krónur á ári en með því að flokka pappírsefni frá minnkar umfang heimilissorps um 30% að meðaltali. Heimili með bláu tunnuna geta sparað sér um 1.000 krónur í sorphirðugjöld á ársgrundvelli með því að fá sér græna tunnu fyrir heimilissorp en hún er einnig tæmd á 20 daga fresti.
Önnur sveitarfélög á höfuðborgarsvæðinu hafa þegar hafið söfnun pappírsefna.
Tímasetningar innleiðingar
2012
Kjalarnes, október.
Grafarholt – Úlfarsárdalur, nóvember.
2013
Grafarvogur – Árbær, janúar.
Breiðholt, febrúar.
Háaleiti – Bústaðir – Laugardalur, mars.
Miðborg – Hlíðar, apríl.
Vesturbær, maí.
Hægt er að panta bláu tunnuna með tölvupósti á sorphirda@reykjavik.is eða í síma 4 11 11 11.