Óveruleg breyting á Aðalskipulagi Reykjavíkur 2001-2024

Ásholtsreitur – Brautarholt 7

Borgarráð Reykjavíkur hefur samþykkt tillögu að breytingu á aðalskipulagi Reykjavíkur 2001-2024 varðandi skilgreiningu á þéttingarreit nr. 18, við Ásholt. Breytingin felur í sér að heimilt verði að byggja allt að 100 nemendaíbúðir á reitnum, einkum litlar einstaklingsíbúðir. Breytingin hefur ekki í för með sér aukningu byggingarmagns eða hækkun nýtingarhlutfalls á reitnum, frá þeim heimildum sem eru í gildandi aðalskipulagi um þéttingarreitinn. Breytingartillagan nær til 5. myndar í Greinargerð I, (1. mynd í netútgáfu).

Sjá nánar um tillögu á vef skipulags- og byggingarsviðs Reykjavíkurborgar, www.skipbygg.is. Aðalskipulagstillagan hefur verið send Skipulagsstofnun til staðfestingar, skv. 2. mgr. 36. gr. skipulagslaga nr. 123/2010 um óverulegar breytingar á aðalskipulagi.

Sjá tillögu (PDF).