Óskað eftir umsögnum um reglur um samskipti við trúar- og lífsskoðunarfélög

Borgarráð Reykjavíkur samþykkti þann 4. október 2011 reglur um samskipti leikskóla, grunnskóla og frístundaheimila Reykjavíkurborgar við trúar- og lífsskoðunarfélög. Skóla- og frístundasviði var falið að úrskurða ef ágreiningur risi um túlkun reglnanna og jafnframt að meta  reynslu af reglunum innan árs frá setningu þeirra í samráði við mannréttindastjóra, fulltrúa úr skóla-, foreldra- og háskólasamfélaginu auk fulltrúa trúar- og lífsskoðunarfélaga.

Lítið hefur verið  um að ágreining varðandi túlkun reglnanna, en ljóst er að ágreiningur er um efni þeirra. Skóla- og frístundasvið hefur í þremur eftirfarandi tilvikum séð ástæðu til að senda skólastjórnendum í leik- og grunnskólum og forstöðumönnum frístundaheimila Reykjavíkurborgar bréf í kjölfar athugasemda sem sviðinu bárust, þar sem ákvæði reglnanna voru ítrekuð og skýrð nánar í þeim tilvikum sem það þótti nauðsynlegt:

  • Skóla- og frístundasvið féllst ekki á þá málsmeðferð sem Gídeonfélagið lagði til í október 2011 við afhendingu Nýja testamentisins til grunnskólabarna. Fengu skólastjórar grunnskóla Reykjavíkurborgar afrit af bréfi sviðsins til Gídeonfélagsins, þar sem fram kemur að skólastjórum grunnskóla í Reykjavík sé ekki heimilt að senda tilkynningu til foreldra um  komu Gídeonfélagsins í skólann og tilboð um afhendingu Nýja testamentisins til barna þeirra,  Gídeonfélaginu sé aftur á móti heimilt að fá afnot af skólahúsnæði utan venjulegs skólatíma í samráði við skólastjóra og annast sjálft kynningu til foreldra  um afhendingu á Nýja testamentinu til nemenda og kynningu á Gídeonfélaginu. Skólastjórum sé heimilt að beiðni Gídeonfélagsins að auglýsa slíkan atburð í auglýsingagátt á heimasíðu skólans.

     
  • Í nóvember á síðastliðnu ári vöknuðu ýmsar spurningar hjá skólastjórnendum um hvernig haga mætti samstarfi skóla og kirkju í aðdraganda jóla. Skóla- og frístundasvið sendi bréf þar sem áréttuð voru  ákvæði d- og h- liða reglnanna um heimsóknir nemenda í kirkjur og sígilda söngva, dansa, leiki og handíðir sem teljast hluti af gamalgrónum hátíðum og frídögum þjóðarinnar og halda sessi sínum í árstíðabundnum skemmtunum og að þar á meðal séu jólasálmar og helgileikir. Skóla- og frístundasvið tók  fram að  ekkert væri því til fyrirstöðu að helgileikir sem nemendur hefðu hingað til fengið að setja upp í kirkjum í borginni yrðu áfram settir þar upp.

     
  • Af gefnu tilefni þótti skóla- og frístundasviði í upphafi þessa skólaárs rétt að minna skólastjóra og forstöðumenn á ákvæði  b-liðar reglnanna um að um almenna kynningu gagnvart foreldrum og börnum á viðurkenndu barna og æskulýðsstarfi trúfélaga skuli fara líkt og með kynningu á hliðstæðum frístundatilboðum frjálsra félagasamtaka. Skólastjórar og forstöðumenn voru minntir á að þeir væru því ábyrgir fyrir því að jafnræðis væri gætt þegar óskað væri eftir slíkum kynningum.

Ekki hefur risið ágreiningur um framgreinda  túlkun skóla- og frístundasviðs á reglunum.



Reglur um samskipti leikskóla, grunnskóla og frístundaheimila við trúar- og lífsskoðunarfélög - Til grundvallar þessum reglum sem gefnar voru út á árinu 2011 liggur sá vilji að tryggja rétt barna til þátttöku í skólastarfi óháð þeirri trúar- og lífsskoðun sem þau alast upp við.

Skóla- og frístundasvið óskar hér með eftir umsögn um hvernig ofangreindar reglur hafa reynst á síðastliðnu ári í samskiptum leikskóla, grunnskóla og frístundaheimila Reykjavíkurborgar og trúar- og lífsskoðunarfélaga.

Óskað er eftir að umsögn berist fyrir 7. desember n.k. og sendist á netfangið sfs@reykjavik.is eða til skóla- og frístundasviðs Borgartúni 12 - 14, 105 Reykjavík.



Bréf Ragnars Þorsteinssonar sviðsstjóra þessa efnis.