Óskað eftir rekstraraðilum veitingareksturs í Ráðhúsi Reykjavíkur

Reykjavíkurborg óskar eftir áhugasömum rekstraraðilum til að taka að sér veitingarekstur í Ráðhúsi Reykjavíkur. Markmiðið er að Ráðhús Reykjavíkurborgar verði lifandi hluti af daglegu lífi borgarbúa og eftirsóknarverður staður til að heimsækja allt árið um kring, frá morgni til kvölds. Jafnhliða þessu þarf að tryggja að vinnuaðstæður starfsmanna hússins séu hafðar í fyrirrúmi.



Óskað er eftir tillögum að útfærslu á rekstrarfyrirkomulagi veitingasölu fyrir almenna gesti og jafnvel starfsmenn Ráðhússins ásamt hugmyndum um hugsanlega útvíkkun á starfseminni í átt að veislum og viðburðum. Um er að ræða leigurými og aðstöðu til rekstrar á fyrstu hæð Ráðhúss.

Áhugasamir geta sótt gögn í þjónustuver Reykjavíkurborgar, Borgartúni 12 - 14. Þann 29. október n.k. kl. 15.00 gefst áhugasömum rekstraraðilum kostur á að kynna sér aðstæður og afla frekari upplýsinga.