Öruggari hjóla- og gönguleið yfir Sæbraut við Súðarvog

Vegna breytinga á göngu- og hjólaleið yfir Sæbraut við Súðarvog verður að slökkva tímabundið á umferðarljósum og loka fyrir umferð gangandi og hjólandi yfir Sæbraut á gatnamótunum. Ljósin verða gerð óvirk á morgun, þriðjudaginn 20. nóvember, kl. 9.00 og er áætlað að þau verði tengd að nýju á miðvikudag kl. 15.00. Jafnframt verður lokað fyrir bílaumferð frá Súðarvogi inn á Sæbraut.

Vegfarendum er bent á hjáleið um gatnamót Sæbrautar og Kleppsmýrarvegs.  Þeir sem koma akandi norður Sæbraut verður eins og áður heimilt að beygja til hægri inn Súðarvog.

Framkvæmdirnar tengjast nýjum hjóla- og göngustíg frá Elliðarárósum að Hlemmi. Nánari upplýsingar um þann stíg má finna í frétt á vef Reykjavíkurborgar: Stórhugur í gerð hjóla- og göngustíga.