Öruggari hjóla- og gönguleið yfir Álfheima
Áfram er unnið að gatnaframkvæmdum í Álfheimum í tengslum við nýja hjóla- og gönguleið frá Hlemmi að Elliðarárósum, en yfir Álfheimana verður henni komið fyrir á nýrri hraðahindrun við Suðurlandsbraut. Vegna framkvæmda hefur þurft að loka annarri akreininni á götukaflanum frá Suðurlandsbraut að Gnoðarvogi. Í dag eru áfangaskil og nú um hádegið verður akreininni inn Álfheimana frá Suðurlandsbraut lokað og verður bílaumferð beint um hjáleiðir.
Áætlað er að opna á ný að viku liðinni. Um leið og vegfarendur eru beðnir velvirðingar á truflunum vegna framkvæmdanna eru þeir beðnir um að sýna aðgát og virða hraðatakmarkanir.
Nánari upplýsingar um hjóla- og göngustíg frá Hlemmi að Elliðarárósum er að finna í frétt á vef Reykjavíkurborgar: Stórhugur í gerð hjóla- og göngustíga.