Ormurinn ógnarlangi og Fenrisúlfurinn ógurlegi flytja að heiman
Sýningin skemmtilega um Orminn ógnarlanga sem börn fengu að njóta í Gerðubergi verður nú sett upp í húsnæði BUGL við Dalbraut.
Velferðarsjóður íslenskra barna og Kiwanisklúbburinn Elliði veittu nýverið styrk til Menningarmiðstöðvarinnar Gerðubergs og Barna- og unglingadeildar Landspítalans til að endurhanna og setja sýninguna um söguheim norrænnar goðafræði upp að nýju. Endurhönnun sýningarinnar gengur út á að láta sýningargripi og aðra umgjörð falla að daglegu vinnu- og leikumhverfi barna, foreldra og starfsfólks á BUGL. Þau munu geta hreiðrað um sig á afmörkuðum svæðum, leikið sér og lifað sig inn í sögurnar sem vísað er í.
Goðafræðin er óþrjótandi efniviður fyrir starfsfólk að vinna með börnunum á skapandi og skemmtilegan hátt auk þess sem sýningin skapar hlýleika og stemningu í umhverfi spítalans. Kristín Ragna Gunnarsdóttir myndlistarkona hannaði sýninguna að beiðni Gerðubergs árið 2010 og vakti sýningin mikla lukku meðal sýningargesta og sló aðsóknarmet.
Líklega hafa langflest verkefni Gerðubergs verið sett upp innan veggja stofnunarinnar en með þessu verkefni er gengið skrefinu lengra og reynt að færa menninguna og upplifunina til barnanna sjálfra; barna sem þurfa á miklum stuðningi að halda til að eiga sér betra líf. Vonast er til að þetta verkefni verði vísir að áframhaldandi samstarfi menningar- og velferðarstofnana í okkar samfélagi.