ATH: Þessi frétt er eldri en tveggja ára gömul.
Orð af orði, orðs ég leitaði
Út er komin áhugaverð skýrsla um þróunarverkefni sem unnið var í leikskólanum Reynisholti. Það miðar að því að efla málþroska barna og undirbúa þau undir lestrarnám. Verkefnið sem fékk yfirskriftina Orð af orði, orðs ég leitaði var unnið á árunum 2008 - 2012. Verkefnastjóri var Guðrún Sigursteinsdóttir sérkennsluráðgjafi í þjónustumiðstöð Breiðholts og tengiliður leikskólans var Guðrún Grímsdóttir sérkennslustjóri.
Sjá skýrsluna Orð af orði, orðs ég leitaði - þróunarverkefni í Reynisholti 2008 - 2012.