Nýtt deiliskipulag fyrir Einholt – Þverholt, lýsing
Nýtt deiliskipulag fyrir Einholt – Þverholt, lýsing
Vegna gerð nýs deiliskipulags á umræddu svæði „Einholt – Þverholt“ er nú til kynningar verkefnislýsing sbr. 1. mgr. 40. gr. skipulagslaga. Lýsing fyrir Einholt - Þverholt er hluti vinnu við gerð deiliskipulags á reit sem afmarkast af Einholti, Þverholti, Stórholti og Háteigsvegi og er tilgangur þessarar lýsingar að vera leiðbeinandi fyrir deiliskipulag svæðisins.
Lýsingin verður aðgengileg á vef skipulags- og byggingarsviðs www.skipbygg.is og eru þeir sem telja sig eiga hagsmuna að gæta hvattir til að kynna sér lýsinguna og koma ábendingum eða athugasemdum á framfæri til skipulags- og byggingarsviðs, Borgartúni 12-14, 105 Reykjavík eða á netfangið skipulag@reykjavik.is, fyrir 1. ágúst nk.