Nýr Landspítali - nýtt deiliskipulag
Borgarstjórn Reykjavíkur samþykkti þann 13. desember 2012, tillögu að nýju deiliskipulagi fyrir nýjan Landspítala. Deiliskipulagstillagan var kynnt í samræmi við 40.- 41. gr. skipulagslaga. Tillagan var kynnt samhliða tillögu að breyttu deiliskipulagi Hringbrautar, tillögu að breytingum á aðalskipulagi Reykjavíkur 2001-2024 og sambærilegum breytingum á svæðisskipulagi höfuðborgarsvæðisins.
Tillögurnar voru kynntar á tímabilinu 10. júlí 2012 til 4. september 2012. Frestur til að gera athugasemdir rann út 4. september. Reykjavíkurborg ákvað að framlengja frest til athugasemda vegna aðalskipulagsbreytingar og deiliskipulagsbreytinga til 19. október 2012. Alls bárust 817 athugasemdir við deiliskipulagstillöguna, þar af 519 samhljóða. Ekki voru gerðar breytingar á tillögunni og hefur hún verið send Skipulagsstofnun til staðfestingar.
Umsögn umhverfis- og skipulagssviðs (PDF)
Svör við athugasemdum í tenglum við umferðarmál (PDF)
Þeir sem óska nánari upplýsinga geta snúið sér til umhverfis- og skipulagssviðs, embættis skipulagsfulltrúa Reykjavíkurborgar.