Nýárssund Ylstrandarinnar 1. janúar 2013 – ísköld ánægja.

 

Ylströndin verður opin kl. 11:00-14:00 á Nýársdag. Þetta verður í sjöunda sinn sem Ylströndin er opin fyrir unnendur sjóbaða og sjósunds á Nýársdag. 1.200 manns hafa fengið sér sundsprett í Nauthólsvíkinni á Nýársdag frá því farið var að hafa opið á þessum degi. 

Sjávarhiti í Nauthólsvík hefur að meðaltali verið 1,2° C frá því mælingar hófust og er útlit fyrir svipaðan sjávarhita þann 1. janúar n.k. Lægsti sjávarhiti í Nauthólsvík  á Nýarsdag hefur mælst -1,7°C (mínus 1,7 gráður Celsíus). 

Reynslan sýnir að ánægja og gleði þátttakenda eykst eftir því sem sjórinn er kaldari og má til gamans geta þess að hugtakið „ísköld ánægja“ hefur verið að festa sig í sessi í Nauthólsvíkinni undanfarið. 

Sjáumst á Nýársdag.

Kveðja starfsfólk Ylstrandarinnar í Nauthólsvík.