Ný stjórnarskrá. Um hvað verður kosið?

Kynningarfundir verða á Borgarbókasafni um þær spurningar sem kosið verður um í þjóðaratkvæðagreiðslunni 20. október. Eiríkur Bergmann og Sigríður Ólafsdóttir fara yfir spurningarnar á kjörseðlinum og svara fyrirspurnum gesta.

Fundirnir verða:

Mánudaginn 1. október kl. 17.15

í Ársafni, Hraunbæ 119

Mánudaginn 8. október kl. 17.15

í aðalsafni, Tryggvagötu 15

Mánudaginn 15. október kl. 17.15

í Sólheimasafni, Sólheimum 27

Allir eru velkomnir!