Ný stefna um skóla án aðgreiningar og sérstakan stuðning
Skóla- og frístundaráð Reykjavíkurborgar samþykkti einróma á fundi sínum í dag nýja og endurskoðaða stefnu um skóla án aðgreiningar og sérstakan stuðning við nemendur í grunnskólum borgarinnar. Hugmyndafræði stefnunnar byggir á alþjóða sáttmálum um réttindi barna og fatlaðra sem Ísland á aðild að, réttindabaráttu fatlaðs fólks og íslenskum menntalögum. Þá helst hún í hendur við þá sýn að tilvera barna byggist á virðingu fyrir lýðræði, margbreytileika og réttindum.
Stefnan byggir á fimm meginstoðum sem ramma utan um margbreytileika í reykvískum grunnskólum:
a) Sveigjanlegt nám, fjölbreytta kennsluhætti og sérstakan stuðning.
b) Sérskóla og sérdeildir í heildstæðu skólasamfélagi.
c) Ráðgjöf við starfsfólk skóla, nemendur og foreldra.
d) Úthlutun fjármagns.
e) Innleiðingu, framkvæmd og mat.
Í stefnunni er lögð áhersla á þróun ólíkra námsleiða þannig að allir nemendur með margvíslega getu, áhuga og námsþarfir nái sínum besta mögulega námsárangri. Jafnframt að markviss og fjölbreyttur stuðningur sé grundvöllur þess að allir nemendur í margbreytilegum nemendahópi fái notið sín í námi og félagslífi. Áhersla er lögð á að efla samstarf sérskóla, sérdeilda og almennra grunnskóla, gagnkvæm tengsl nemenda og starfsfólks og skapa samstarfsvettvang sérfræðiþjónustu skóla og ráðgjafarþjónustu sérskóla með því að stofna til Miðlunartorgs þekkingar.
Leitað var umsagna frá 15 aðilum við mótun stefnunnar, m.a. Félags íslenskra sérkennara, Kennarafélags Reykjavíkur, Menntavísindasviðs HÍ, SAMFOK og Umboðsmanns barna. Tekið var tillit til allra athugasemda sem bárust, en almenn ánægja kom fram með endurskoðaða stefnu.
Í bókun skóla- og frístundaráðs í dag segir m.a.
- Á hverjum degi njóta börn og unglingar í grunnskólum Reykjavíkur þess að ganga í skóla án aðgreiningar, farsæl dæmi um jákvæðar birtingarmyndir stefnunnar eru ótalmörg. En á hverjum degi má gera betur því nám og kennsla í skóla margbreytileikans er í sífelldri þróun og stefnan er jafn krefjandi og hún er gefandi. Skóla- og frístundaráð hvetur til upplýstrar umræðu allra um skóla án aðgreiningar. Beina þarf sjónum að grundvallarmarkmiðum stefnunnar. Tryggja þarf samhljóm hennar við þróun náms- og kennsluhátta og samspils við samfélagsþróun, m.a. margvíslega réttindabaráttu. Draga þarf fram hvað í framkvæmdinni má bæta og hvaða verkfæri starfsfólk í skóla án aðgreiningar telur sig helst þurfa á að halda.
Stefna um skóla án aðgreiningar og sérstakan stuðning við nemendur í grunnskólum borgarinnar.