Ný hafnarhverfi endurtengja borg og höfn



Borgarráð samþykkti á fundi sínum í morgun að vísa rammaskipulagi gömlu hafnarinnar í Reykjavík til meðferðar í skipulagsráði. Á sama fundi samþykkti  borgarráð kaup Reykjavíkurborgar á lóðum á Mýrargötu og slippsvæði af Faxaflóahöfnum fyrir 528 milljónir króna. Mögulegt er að byggja allt að 250 íbúðir á svæðinu á milli Sjóminjasafnsins og Slippsins en reiknað er með að framkvæmdir hefjist fyrst þar.

Rammaskipulagið byggir á vinningstillögu arkitektastofunnar Graeme Massie Architects sem bar sigur úr býtum í opinni hugmyndasamkeppni um Gömlu höfnina sem lauk í desember 2009. Tillagan gerir ráð fyrir þéttri blandaðri byggð við höfnina og meiri sveigjanleika en fyrirliggjandi deiluskipulag á svæðinu.

Markmið rammaskipulagsins er að gera borgina að hluta af höfninni og höfnina hluta af borginni. Byggt verður þétt hafnarhverfi við sjóinn, húsin standa nánast á hafnarbakkanum og göturnar teygja sig niður að hafinu. Við það opnast þægilegar leiðir niður að höfninni og sjónásar skapast út á sjóinn.

Gert er ráð fyrir því að Geirsgötu verði breytt úr fráhrindandi og hættulegri hraðbraut í vistlega borgargötu með talsvert hægari umferð en þar er nú. Gatan á samt sem áður að geta annað mikilli umferð sem fer þarna í gegn.

Skipulagið gefur borgarbúum kost á því að njóta hafnarinnar og þeirra lífsgæða sem vistlegt og vel skipulagt hafnarhverfi skapar enn frekar. Svæðinu á milli Sjóminjasafns og Hörpu er skipt upp í fjögur hafnarhverfi sem kallast Vesturbugt, Suðurbugt, Miðbakki og Austurbakki. Hvert hverfi mun hafa sinn karakter en öll einkennast þau af fjölbreytni, góðum almenningsrýmum og greiðum leiðum fyrir fótgangandi vegfarendur og hjólandi. Bílastæði verða nær eingöngu í bílakjöllurum og kveðið er á um að þau skuli að hámarki vera eitt á íbúð.

Uppbygging hafnarsvæðanna fellur vel að markmiðum endurskoðaðs aðalskipulags Reykjavíkurborgar til ársins 2030 en þar er helsta markmiðið að þétta byggð. Borgin á ekki lengur að þenjast út á við heldur inn á við og er gert ráð fyrir því að 90% nýrra íbúða rísi innan núverandi þéttbýlismarka. Þó verður eingöngu byggt á auðum og illa nýttum svæðum. Hafnarsvæðið fellur vel inn i þessa mynd því það er vestast á mikilvægum þéttingarás sem teygir sig frá höfninni og austur að Elliðaárósum.

Með nýja rammaskipulaginu við gömlu höfnina er einnig snúið frá þeirri stefnu að rífa niður gömul hús og byggja allt nýtt frá grunni. Áhersla er lögð á það að byggja inn í það sem fyrir er og sýna því virðingu. Gömlu verbúðirnar við Suðurbugt halda sér allar, gömlu spilhúsin i Slippnum svo og Slippurinn sjálfur sem verður áfram á sínum gamla stað, í það minnsta fyrst um sinn.  Þá er þess gætt að húsahæðir séu í sígildum reykvískum skala; þrjár til fimm hæðir. Göturnar í nýja skipulaginu eru hafðar frekar þröngar, eins og í Grjótaþorpinu og inn á milli húsanna eru víða lítil sjarmerandi torg.

Lagt er upp með að hafa byggðina sem blandaðasta en í hverfunum verða íbúðir, verslanir, handverkstæði, skrifstofur, hótel, slippur, ferðaþjónusta af ýmsu tagi, söfn, kaffihús, gallerí, veitingahús, fiskmarkaður og jafnvel útisundlaug.  Í deiliskipulagsvinnu sem á eftir fylgir verður hugað mjög að því að gera vandaðar úttektir á skuggavarpi og vindstrengjum.

Uppbyggingin verður áfangabundin. Fyrst verður hafist handa á vestasta svæðinu, milli Sjóminjasafns og Slipps en þar gætu risið allt að 250 íbúðir og svo koll af kolli.

Stýrihópur á vegum Reykjavíkurborgar og Faxaflóahafna um endurskoðað skipulag við gömlu höfnina hefur verið að störfum frá 24. mars 2011 og hefur hann nú lokið störfum. Í stýrihópnum voru Hjálmar Sveinsson, formaður, Páll Hjaltason, Hólmfríður Ósmann Jónsdóttir, Gísli Marteinn Baldursson og Júlíus Vífill Ingvarsson.

Á starfstíma sínum hefur stýrihópurinn átt fundi með hagsmunaaðilum, m.a. útgerðarfyrirtækjum og fulltrúum þeirra, ferðaþjónustufyrirtækjum og Portusi.  Í maí síðastliðnum var efnt til göngu um svæðið sem lauk með fundi þar sem drögin voru kynnt. Allt að eitt hundrað manns mættu á fundinn og voru undirtektir góðar. Í bígerð er að halda aðra slíka göngu um svæðið og verður hún auglýst nánar síðar.

Fleiri myndir á fésbókarsíðu Reykjavíkurborgar.