Notendastýrð persónuleg aðstoð gefur aukið vald
Fatlað fólk sem þarf aðstoð í daglegu lífi á að geta valið hvernig hún er veitt. Þetta er framtíðarsýn Reykjavíkurborgar og kjarninn í sérstöku þróunar- og tilraunaverkefni sem Velferðarsvið Reykjavíkurborgar stendur fyrir. Á vef Reykjavíkurborgar hefur verið auglýst eftir þátttakendum. Tilraunaverkefnið byggir á Handbók um NPA og leiðbeinandi reglum velferðarráðuneytisins.
Notendastýrð persónuleg aðstoð – NPA, er boðin á þjónustusvæði Reykjavíkurborgar og Seltjarnarnesbæjar. Þar sem um tilraunaverkefni er að ræða verður horft til fjölbreytni í vali á þátttakendum í verkefnið.
Með því að gera samning um NPA fær notandi greiðslur í stað þjónustu, velur aðstoðarfólk, er verkstjórnandi, ákveður sjálfur hvað hann vill gera og hvernig aðstoðarfólk nýtist. NPA kemur í stað velferðarþjónustu sem veitt er á grundvelli laga um málefni fatlaðs fólks og félagsþjónustu sveitarfélaga.
Þjónustumiðstöðvar Reykjavíkurborgar veita upplýsingar og ráðgjöf um ferli umsókna. Samvinna er höfð við umsækjendur við mat á stuðningsþörf, gerð samkomulags og samnings um NPA. Umsækjendur eiga rétt á að tilnefna sér talsmann vegna umsóknarferilsins sé þess óskað. Umsóknarfrestur er til og með 10. september næstkomandi.