Norræn nemakeppni í húsamálun í Tjarnarsalnum
Dagana 30. ágúst - 1. september verður haldið hér á landi þing norrænna málarameistara (NMO). Að venju er haldin í tengslum við þingið norræn nemakeppni í húsamálun. Að þessu sinni fer keppnin fram í Ráðhúsi Reykjavíkur og hófst hún stundvíslega kl. 10.00 í gær þriðjudaginn 28. ágúst. Keppnin stendur alla daga frá kl. 9.00 til kl. 18.00 fram á föstudag 31. ágúst en þá lýkur henni kl. 16.00. Þáttakendur í keppninni koma frá öllum Norðurlöndunum og fá þeir hver um sig bás til að mála eftir kúnstarinnar reglum í von um að vinna. Það er mjög áhugavert að koma í Ráðhúsið og fylgjast með þessum keppendum þar sem þeir mála, spá og spekúlera. Til gamans má geta þess að eini karlkyns keppandinn kemur frá Íslandi. Veitt eru ein verðlaun fyrir glæsilegasta básinn og þau verða tilkynnt á þingi norrænna málarmeistara á laugardagskvöld.