Nemendur í Kelduskóla hófu átakið Göngum í skólann
Átakið Göngum í skólann, sem hefur að markmiði að hvetja til aukinnar hreyfingar, hófst í Kelduskóla í morgun. Guðbjartur Hannesson velferðarráðherra setti verkefnið formlega af stað en fleiri grunnskólar í borginni taka þátt í því.
Við opnunarathöfnina í Kelduskóla í morgun flutti Árný Inga skólastjóri og Hafsteinn Pálsson sviðsstjóri hjá ÍSI einnig nokkur orð og hljómsveitin Moses Hightower flutti nokkur vinsæl lög við mikla ánægju nemenda. Að því loknu skunduðu nemendur út og gengu fylktu liði um nágrenni skólans.
Meginmarkmið Göngum í skólann eru að hvetja nemendur og foreldra á Íslandi til að ganga, hjóla eða fara á annan virkan hátt til og frá skóla. Um leið er ætlunin að:
Hvetja til aukinnar hreyfingar með því að auka færni barna til að ganga á öruggan hátt í skólann og fræða þau um ávinning reglulegrar hreyfingar. Kenna reglur um öryggi á göngu og á hjóli.
Draga úr umferð við skóla: Draga úr umferðarþunga, mengun og hraðakstri nálægt skólum. Betra og hreinna loft ásamt öruggari og friðsælli götum og hverfi.
Stuðla að vitundarvakningu um ferðamáta og umhverfismál: Hversu ,,gönguvænt“ umhverfið er og hvar úrbóta er þörf. Samfélagsvitund eykst. Hvetja til heilbrigðs lífsstíls fyrir alla fjölskylduna: Hreyfing vinnur gegn hjartasjúkdómum, offitu og sykursýki II og stuðlar að streitulosun, betri sjálfsmynd, o.fl.
Verkefnið Göngum í skólann er alþjóðlegt og hófst í Bretlandi árið 2000. Þetta er í sjöunda sinn að Íslendingar taka þátt í því en þátttaka hefur farið vaxandi ár frá ári. Á alþjóðavísu er Göngum í skólann mánuðurinn í október og Alþjóðlegi Göngum í skólann dagurinn er 3. október. Vegna birtu og veðuraðstæðna fer Göngum í skólann verkefnið fram hér á Íslandi í septembermánuði og því lýkur á Alþjóðlega Göngum í skólann deginum þann 3. október n.k.
Þeir sem að verkefninu standa hérlendis eru Íþrótta- og Ólympíusamband Íslands, mennta- og menningarmálaráðuneytið, embætti Landlæknis, Ríkislögreglustjóri, Slysavarnafélagið Landsbjörg, Umferðastofa og Landssamtökin Heimili og skóli.