Nemendur í félagsmiðstöðinni Frosta styrkja Bleiku slaufuna
Krakkarnir í Hagaskóla afhentu í dag Krabbameinsfélagi Íslands 100.000 kr. til að styrkja rannsóknir. Þeir efndu til "bleiks balls" þann 14. nóvember sl. til að styrkja Bleiku slaufuna og vildu með því framtaki leggja sitt af mörkum til baráttunnar gegn krabbameini.
Katrín Stella Friðriksdóttir formaður nemendaráðs Frosta og Hagaskóla afhenti Ragnheiði Haraldsdóttur hjá Krabbameinsfélaginu söfnunarféð við hátíðlega athöfn á sal Hagaskóla. Ragnheiður þakkaði nemendum vel fyrir gjöfina, sagði framtak unglinganna lýsa fallegri hugsun og víðsýni sem aðrir mættu taka sér til fyrirmyndar.