Nemendur í Árbæjarskóla innsigla eineltissáttmála

Skemmtilegur gjörningur var framinn í Árbæjarskóla í dag þegar nemendur skuldbundu sig með fingrafari sínu til að vinna af alefli gegn einelti í skólanum. Sérhver nemandi og starfsmaður skólans setti með lit fingrafar sitt á myndverk sem hægt og hægt myndaði formfagran regnboga, tákn fjölbreytileikans og umburðarlyndis.

Myndverkið mun standa áfram í miðrými Árbæjarskóla sem sáttmáli um að unnið verði af alefni gegn einelti í þessum stærsta grunnskóla borgarinnar. Í eineltissáttmála sem jafnframt verður felldur inn í verkið með orðum segir að allir ætli að leggja sitt af mörkum til að í samfélaginu ríki kurteisi og virðing.

Gleði og eindrægni ríkti í Árbæjarskóla í dag og höfðu allir gaman af þessu sköpunarferli. Að loknum þessum gjörningi gekk hver bekkur frá bekkjarsáttmála gegn einelti með sínum umsjónarkennara.