Myndlist, leikur og dans á Unglist
Í Leiktu betur keppa lið framhaldsskólanna í leiklist án handrits, eða svokölluðum spuna. Oft fá leikarar áskoranir úr sal sem koma þeim algjörlega í opna skjöldu og úr verður sprenghlægileg skemmtun. Komdu og hlæðu með okkur klukkan 20.00 í föstudaginn 9. nóvember í Tjarnarbíói
Myndlistarmaraþoni hleypt af stokkunum í Gallerí Tukt milli kl. 13.00 - 18.00 laugardaginn 10. nóv. Afhent verða gögn og reglur um þátttöku. Vegleg verðlaun frá Myndlistarskólanum í Reykjavík og Litalandi.
Unglist lýkur með frábærri danssýningu laugardagskvöldið 10. nóvember kl. 20.00 í Austurbæ, Snorrabraut 37. Nútímadans, samtímadans, ballet, jazzdans, hip hop og break dans eru á meðal dansstíla kvöldins sem tileinkað er ungum dönsurum á Íslandi og fjölbreytninni í dansinum.
Við fæðumst öll með einhverskonar dans í okkur en það sést best þegar lítil kríli dilla sér í takt við tónlist jafnvel áður en þau geta staðið í fæturna. Allar hreyfingar má túlka sem dans, þó skoðanir fólks á því hvernig skilgreina eigi hugtakið séu misjafnar. Nútímadans, samtímadans, ballet, jazzdans, hip hop og break dans eru á meðal dansstíla kvöldins sem tileinkað er ungum dönsurum á Íslandi og fjölbreytninni í dansinum
ATH. FRÍTT ER INN Á ALLA VIÐBURÐI UNGLISTAR
Nánar á á heimasíðu Unglistar og heimasíðu Hins Hússins.