Mikill áhugi á rammaskipulagi gömlu hafnarinnar
Hátt á annað hundruð manns hafa sótt kynningargöngur og fundi á vegum Faxaflóahafna og skipulags- og byggingarsviðs Reykjavíkurborgar þar sem nýtt rammaskipulag gömlu hafnarinnar hefur verið kynnt. Á laugardaginn, 29. september, var farin ganga undir leiðsögn Hjálmars Sveinssonar formanns stýrihópsins sem vann rammaskipulagið. Gangan hófst kl. 11 við Hörpu en síðan var staðnæmst við Ægisgarð og Mýrargötu og farið yfir rammaskipulagið og þær framkvæmdir sem eru í bígerð við höfnina. Nokkrir tugir manna tóku þátt í göngunni. Að lokinni göngu var boðið upp á kaffi, kleinur og pönnukökur í Sjóminjasafninu áður en fjölmennur fundur um rammaskipulagið hófst. Þar kynnti Hjálmar skipulagið með glærusýningu en síðan var orðið gefið laust. Mikill áhugi er á skipulaginu og komu nokkrar athugasemdir fram á fundinum sem verða teknar til greina þegar vinna við deiliskipulag svæðisins hefst.
Á fundinum kom fram að skipulagsyfirvöld í Reykjavík telja mikilvægt að fyrirhuguð uppbygging verði áfangaskipt. Uppbyggingin mun hefjast vestast á svæðinu sem rammaskipulagið tekur til, á svæðinu sem stendur neðan Mýrargötu. Reykjavíkurborg hefur keypt þetta svæði af Faxaflóahöfnum. Borgin hefur einnig keypt Allianz húsið, sem er friðað, og hyggst gera það upp. Þarna eru einnig hálfsteyptir veggir við Mýrargötu 26 en framkvæmdir þar hefjast aftur í þessari viku.
Á fundinum komu m.a. fram þau sjónarmið að húsin á Mýrargötu megi ekki vera of há og að ekki megi byggja of nálægt Slippnum. Ekki stendur til að Slippurinn loki í næstu framtíð en fram kom að tæki Slippsins, t.d. dráttarspilin, munu þarfnast endurnýjunar á næstu árum og verður m.a. skoðað hvort hægt verði að færa hann til á hafnarsvæðinu.
Það sjónarmið heyrðist einnig að ekki mætti þrengja of mikið að hefðbundinni hafnarstarfsemi með íbúðabyggð því þá myndi útgerð hverfa af svæðinu.
Athafnasvæði útgerðar mun hins vegar markast af svæðinu í vesturhöfninni fyrir norðan Kaffivagninn. Þar eru mikil umsvif útgerðar og hefur HB Grandi m.a. fengið úthlutað lóð undir stóra frystigeymslu sem mun draga úr umferð þungra fiskflutningatrukka um umferðaræðar borgarinnar.
Í rammaskipulaginu er gert ráð fyrir því að byggð verði tveggja til fimm hæða hús á svæðinu með inndregnum hæðum og bílakjöllurum. Ekki er gert ráð fyrir nema einum bíl á íbúð. Göturnar verða nokkuð þröngar og uppbrotnar með litlum torgum en svipaðar götumyndir er að finna í Grjótaþorpinu. Þá myndast með skipulaginu fallegir sjónásar niður að sjónum svipað og á Frakkastíg.
Rammaskipulag hefur enga lögformlega þýðingu. Það er einfaldlega hugmyndastig sem lýsir ákveðinni skipulagssýn. Næsta skref er að deiliskipuleggja svæðið. Þá fá bæði einstaklingar og hagsmunaaðilar tækifæri til að skila inn athugasemdum.