Mikil gleði með nýja hjólabraut

Í dag var opnuð ný hjólaþrautabraut í Öskjuhlíð. Um er að ræða ,,pumpu-braut“ (,,Pump Track“) sem farin er með sérstakri tækni og notuð til þjálfunar og leikja. Félagar í hjólreiðafélaginu Tindi eiga heiðurinn af lagningu brautarinnar og hafa unnið hana í samvinnu við Reykjavíkurborg sem leggur til svæðið. Opnun brautarinnar liður í dagskrá Samgönguviku sem nú stendur yfir. Brautin er staðsett við Nauthólsveg norðan við Háskólann í Reykjavík.

Mikil gleði ríkti í dag þegar brautin var tekin í notkun og var tekið vel á því. Fleiri myndir eru á Facebook-síðu Reykjavíkurborgar >> Skoða myndir.

Fyrirmyndirnar að brautinni eru erlendar eins og nafnið Pump Track gefur til kynna, en útfærð af félögum í Tindi og hafa þeir veg og vanda að framkvæmd. Þeir hafa unnið hörðum höndum undanfarið við að móta brautina og þjappa undirlag.

Hjólreiðafélagið Tindur var stofnað í febrúar 2011 með það að markmiði að fjölga þátttakendum í keppnishjólreiðum á Íslandi, sem og þeim greinum sem stundaðar eru hvort heldur það eru samgönguhjólreiðar, keppnishjólreiðar eða bara hjólreiðar til skemmtunar, eins og segir á vef félagsins. Tindur er löglegt íþróttafélag innan ÍSÍ og stendur öllum opið til þátttöku.