Metþátttaka á Fjölmenningarþingi Reykjavíkurborgar

Hlustað verður á skoðanir og viðhorf innflytjenda á Fjölmenningarþingi Reykjavíkurborgar sem  haldið verður í annað sinn laugardaginn 10. nóvember. Þingið verður haldið í Borgarleikhúsinu og hafa um 200 manns skráð sig sem er metþátttaka. Markmiðið með þinginu er að bæta þjónustu við innflytjendur og er yfirskrift þingsins „Let‘s talk“ eða „Tölum saman“. Þingið hefst klukkan 10.00 með ávarpi borgarstjóra og lýkur klukkan 15.00.

Umræðuefni þingsins að þessu sinni er upplýsingaflæði þ.e. hvaða upplýsingar eru mikilvægar og hvernig best sé að setja þær fram. 
 
Á þinginu verður ennfremur kosið í fjölmenningarráð Reykjavíkur og hafa 16 einstaklingar gefið kost á sér til setu í ráðinu. Í ráðinu sitja 7 fulltrúar sem eiga að vera ráðgefandi fyrir mannréttindaráð og aðrar stofnanir borgarinnar í málefnum innflytjenda. 
 
Kosningar í nýtt fjölmenningarráð fara fram dagana 8. og 9. nóvember frá klukkan 10.00 til 17.00 í Ráðhúsi Reykjavíkur og á Fjölmenningarþingi Reykjavíkurborgar sem haldið verður í Borgarleikhúsinu frá klukkan 10.00 til 15.00. 
 
Allir íbúar Reykjavíkurborgar sem eru af erlendum uppruna og hafa náð 18. ára aldri hafa rétt til að kjósa.
 
Úrslit kosninga verða kynnt mánudaginn 12. Nóvember í Ráðhúsi Reykjavíkur klukkan 13.00.