Menningardagar í Árbæ 4.-9. nóvember
Menningardagar Árbæjar hefjast á sunnudaginn 4. nóvember kl. 9.00 með pottakaffi í Árbæjarlaug og heilsuskokki Árbæjarþreks. Menningardagar verða svo formlega settir á Árbæjarsafni kl. 13.00 og svo rekur hver atburðurinn annan allan sunnudaginn. Þeir halda áfram fram á föstudaginn 9. nóvember. Rauði þráður Menningardaga Árbæjar 2012 eru barna- og fjölskylduvænir menningarviðburðir.
Þetta er í annað sinn sem Menningardagar eru haldnir í Árbæ að tilstuðlan hverfisráðs Árbæjar. Dagskráin er fjölbreytt og allir geta fundið eitthvað við sitt hæfi. Verið velkomin í Menningarheim Árbæjar 4. nóvember - 9. nóvember.
Dagskrá:
Sunnudagurinn 4. nóvember
Árbæjarlaug og Árbæjarþrek kl. 9.00 – 10.00
Pottakaffi í Árbæjarlaug góðir gestir og gott með kaffinu.
Kl. 14.00 Heilsuskokk fjölskyldunnar með Árbæjarþreki (skráning hefst 13.30).
Kl. 14.30 Sund og teygjur í Árbæjarlaug fyrir skokkara.
Árbæjarkirkja
Kl. 11.00 Guðsþjónusta, sr. Sigrún Óskarsdóttir þjónar fyrir altari og prédikar. Sunnudagaskólinn á sama tíma í safnaðarheimili kirkjunnar. Örn
Árnason gítarleikari og söngvari sér um tónlistina.
Árbæjarsafn
Kl. 13.00 Setning Menningardaga Árbæjar við torgið.
Kl. 13.30 Hugvekja, sr. Þór Hauksson
Sögubílinn Æringi og Sóla sögukona frá Ársafni skemmta gestum og gangandi. Slökkvilið höfuðborgarsvæðisins sýnir slökkviliðs- og sjúkrabíla.
Fólki velkomið að ganga um safnið og virða fyrir sér húsin á Árbæjarsafni.
Kl. 14.00 Söguganga um Árbæjarhverfi, Eggert Þór Bernharðsson.
Ársafn
Kl. 14.00 – 15.00 Skákmót Ársafns.
Fylkisvöllur
Kl. 13.00 Fylkir – Víkingur R. – 4. fl. kvenna A. knattspyrna.
Kl. 14.20 Fylkir – Víkingur R. – 4. fl. kvenna B. knattspyrna
Mánudagurinn 5. nóvember
Rauðaborg, leikskóli
Kl. 9.30 Börn fædd 2010 og 2011 opna myndlistarsýningu í Ársafni.
Blásalir, leikskóli
Kl. 11.00 Opnun myndlistarsýningar í Ársafni.
Árbæjarsafn
Kl. 13.00 Leiðsögn um safnið
Frístundamiðstöðin Ársel
Kl. 9.00 – 16.00 Anddyri minninganna! Í anddyri Ársels verður ýmislegt sem vekur upp minningar úr fortíð starfsins.
Árbæjarkirkja
6 - 9 ára starf (STN) Selásskóla 1. - 4. bekkur kl. 14.00 – 14.45 10- 12 ára starf (TTT) Selásskóla 5. - 7. bekkur kl. 15 - 16. Þema vikunnar er
„Jól í skókassa“. Börnin undirbúa og gefa gjafir til þeirra sem minna mega sín.
Ársafn
Kl. 16.30 Arngrímur Vídalín les úr verkum sinum.
Þriðjudagurinn 6. nóvember
Árbæjarsafn
Kl. 13.00 Leiðsögn um safnið
Ársafn
Flautukór Tónskóla Sigursveins kemur við á safninu
Frístundamiðstöðin Ársel
Kl. 9.00 – 16.00 Anddyri minninganna! Í anddyri Ársels verður ýmislegt sem vekur upp minningar úr fortíð starfsins.
Tónskóli Sigursveins
Kl. 16.00 – 18.00 Töfraflauturnar frá Tónskóla Sigursveins ráfa um hverfið og spila fyrir íbúa.
Ártúnsskóli
Kl. 16.00 – 18.00 Opið hús á bókasafninu fyrir foreldra og börn.
Árbæjarkirkja
6 - 9 ára starf (STN) 1. bekkur kl. 14.00 – 14.45
6 - 9 ára starf (STN) 2.- 4. bekkur kl. 15.00 – 15.45
10 - 12 ára starf (TTT) 5. - 7. bekkur kl. 16.30 – 17.30 Þema vikunnar er „Jól í skókassa“. Börnin undirbúa og gefa gjafir til þeirra sem minna mega sín.
10.00 – 12.00 Opið hús, foreldramorgnar í Árbæjarkirkju.
Fylkir – Fylkishöll
Kl. 19.30 Fylkir – HK – N1 deild kv. handbolti.
Árbæjarlaug
Kl. 20.00 – 22.00 Sundlaugarpartý í samstarfi við Ársel.
Miðvikudagurinn 7. nóvember
Árbæjarskóli
8.10 – 16.00 Opið hús í skólanum. Foreldrar og aðrir gestir hvattir til að mæta og fylgjast með skólastarfinu. Sjá nánar á heimasíðu skólans
http://www.arbaejarskoli.is/forsida/.
Rofaborg, leikskóli
10.00 – 11.30 Opið hús
Norðlingaskóli
10.00 – 12.00 OPINN SKÓLI OG SKÓLALÓÐ Í NORÐLINGASKÓLA
Gestum og gangandi gefst kostur á að kynna sér skólastarf okkar Norðlinga, kíkja inn í skólastofurnar og skoða vinnu og verk nemenda
sem og nýtt og glæsilegt skólahús og skólalóð sem verið er að ljúka framkvæmdum við um þessar mundir. Allir hjartanlega velkomnir.
Félagsmiðstöðin Hraunbæ 105
11.00 – 15.00 Fatasala á vegum Logy.is
11.30 – 12.30 Menningarmáltíð. Starfsfólk og notendur grilla saman
13.00 – 13.30 Tónlistaratriði frá Tónskóla Sigursveins
13.30 – 14.00 Tískusýning á vegum Logy.is
14.00 – 14.30 Gospelkór Árbæjarkirkju
Árbæjarsafn
13.00 Leiðsögn um safnið
Frístundamiðstöðin Ársel
9.00 – 16.00 Anddyri minninganna! Í anddyri Ársels verður ýmislegt sem vekur upp minningar úr fortíð starfsins.
Árbæjarkirkja
6 - 9 ára starf (STN) Ártúnsskóla 1. - 4. bekkur kl. 14.30 – 15.15
10 - 12 ára starf (TTT) Ártúnsskóla 5. - 7. bekkur kl. 15.30 – 16.30. Þema vikunnar er „Jól í skókassa“. Börnin undirbúa og gefa gjafir til þeirra sem
minna mega sín.
Kl. 10.00 – 12.00 Opið hús, foreldramorgnar í Mest húsinu Norðlingaholti
Árbæjarkirkja.
Kl. 12.00 Kyrrðar og fyrirbænarstund. Opið hús „heldri“ borgara.
Ársafn
Kl. 15.30 Nína Óskarsdóttir og Kristín Arngrímsdóttir lesa úr verkum sínum.
Fylkishöll
20.00 1. deild blak kvenna. Fylkir – Þróttur
Félagsmiðstöðvarnar Tían og Holtið
Hinn árlegi félagsmiðstöðvadagur er haldinn hátíðlegur í félagsmiðstöðvum um allt land 7. nóvember. Húsið opnar kl. 18.00 og er dagskráin til kl.
21.00. Unglingahóparnir selja kaffi og kökur í fjáröflunarskyni, bingó, myndir og myndbönd úr starfinu sem unglingar og starfsmenn hafa
sett saman, billiard og borðtennis. Að lokum verða þátttakendur hönnunarkeppninnar STÍL að sýna hönnun sína.
Fimmtudagurinn 8. nóvember
Kvarnaborg, leikskóli
Kl. 8.00 – 9.00 Morgunkaffi í Kvarnaborg
Árbæjarlaug í samvinnu við Ársafn – alla vikuna
Árbæjartextar, Textar úr verkum Árbæjarskálda.
Rofaborg, leikskóli
Kl. 10.00 – 11.30 Opið hús
Frístundamiðstöðin Ársel
9.00 – 16.00 Anddyri minninganna! Í anddyri Ársels verður ýmislegt sem vekur upp minningar úr fortíð starfsins.
Selásskóli
Kl. 13.00 – 13.30 Nemendur skólans og gestir koma saman og syngja vinasöngva við undirleik hljómsveitar.
Árbæjarsafn
13.00 Leiðsögn um safnið.
Árbæjarkirkja
6 - 9 ára starf (STN) Norðlingaskóla 1. - 4. bekkur kl. 14.00 – 14.45
10 - 12 ára starf (TTT) Norðlingaskóla 5. - 7. bekkur kl. 15.00 – 16.00 Þema
vikunnar er „Jól í skókassa“. Börnin undirbúa og gefa gjafir til þeirra sem
minna mega sín.
Frístundaheimili Frístundamiðstöðvarinnar Ársels
15.00 – 17.00 Opið hús fyrir gesti í frístundaheimilunum Klapparholti við Norðlingaskóla, Víðiseli Selásskóla og Töfraseli í Árseli.
Ársafn
18.00 Nemendur úr Tónskóla Sigursveins verða með gítartónleika.
18.00 – 18.30 Gítartónleikar Árbæjardeildar tónskóla Sigursveins.
Fylkir – Fylkishöll
18.15 Fylkir1 – FH1 - 3. flokkur kvenna í handbolta.
21.00 Fylkir – Hamar - 2. deild karla blak.
Föstudagurinn 9. nóvember
Heiðarborg, leikskóli
9.15 Söngstund - Árbæingum boðið á söngstund.
Frístundamiðstöðin Ársel
9.00 – 16.00 Anddyri minninganna! Í anddyri Ársels verður ýmislegt sem vekur upp minningar úr fortíð starfsins.