Meiri samþætting og samfelldur skóladagur í Fellahverfi

Tveggja ára tilraunaverkefni er að fara af stað í Fellahverfi sem miðar að því að samþætta betur skóla- og frístundastarf og styrkja aðlögun skólabarna af erlendu bergi brotnu. Skóladagur barna í 1. og 2. bekk í Fellaskóla verður lengdur úr 30 klukkustundum í 34 klukkustundir á viku og stóraukin áhersla lögð á málþroska og læsi. Þannig verður tveimur fyrstu tímum hvers skóladags varið í markvissa málörvun og lestrarnám í litlum hópum.

Með aukinni samþættingu í skóla- og frístundastarfi verður leitast við að skapa hvetjandi námsumhverfi og efla félagsfærni og samskipti. Safnfrístund fyrir börn í 3. og 4. bekk í Fellaskóla verður starfrækt að Hraunbergi 12 og mun frístundamiðstöðin Miðbergi skipuleggja frístundastarfið. Alls verður hægt að taka á móti 44 börnum að Hraunbergi 12, en mikil húsnæðisþrengsl hafa verið í Álfheimum, frístundaheimili Hólabrekkuskóla.

Meginmarkmið þessa tilraunaverkefnis er að bæta námsárangur nemenda og flétta betur saman nám, kennslu og frístundastarf, en stór hluti nemenda í Fellaskóla er af erlendum uppruna. Verkefnið verður unnið í samstarfsteymi kennara, frístundaráðgjafa þroskaþjálfa og stuðningsfulltrúa og í nánu samstarfi við foreldra og skólaráð Fellaskóla.