Meiri ánægja með sumargötur en nokkru sinni fyrr
Viðhorfskönnun meðal vegfarenda og rekstraraðila á þeim hluta Laugavegar sem lokaður var á liðnu sumri sem sumargata svo og á Skólavörðustíg sýnir vaxandi ánægju með það fyrirkomulag. Könnunin, sem Páll Líndal umhverfissálfræðingur gerði, var með sama sniði og könnun sem gerð var í fyrra og var bæði fylgst með vegfarendum og leitað svara hjá þeim og rekstraraðilum um viðhorf til göngugatnanna. Rekstraraðilar voru einnig spurðir hvort tilraunin hefði haft áhrif á viðskiptin.
Í fyrra kom í ljós að bæði vegfarendur og rekstraraðilar voru jákvæðari í viðhorfum til þess fyrirkomulags að hafa göngugötu eftir tilraunina en fyrir, og jókst jákvæðnin hlutfallslega meira hjá rekstraraðilum frá 43,3% og upp í 69%. Eftir tilraunina í ár hafa jákvæð viðhorf aukist enn meira hjá rekstraraðilum og eru komin upp í 75,6%.
Minni breyting varð á viðhorfum vegfarenda á Laugavegi en þeir eru almennt mun jákvæðari, 91% voru ánægðir með tilraunina í fyrra, en 94% voru ánægðir í sumar sem leið. Svipað viðhorf mældist meðal vegfarenda á Skólavörðustíg, þar voru 93% jákvæðir. Fleiri og fleiri virðast því kunna að meta að þessar verslunargötur séu göngugötur yfir hásumarið.
Meira um könnuna á vef Borghildar.