Maríuborg fyllir tuginn

Leikskólinn Maríuborg í Grafarholti fagnaði á dögunum tíu ára afmæli. Á þeim tímamótum fékk skólinn sinn fyrsta Grænfána. 



Tveir fulltrúar frá Landvernd , þær Salome Hallfreðsdóttir og Sigríður Bylgja Sigurjónsdóttir, komu og afhentu skólanum fánann og foreldrafélagið færði honum fánastöng í afmælisgjöf svo draga mætti Grænfánann að húni. Einnig bauð foreldrafélagið upp á leikskýninguna um Pétur og úlfinn og vakti hún mikla kátínu.

Haldin var heilmikil afmælisveisla þar sem börn og foreldrar buðu upp á veitingar. Börnin sungu nokkur lög, m.a. meðal Maríuborgarsönginn, og fóru með þulur.

Öll börnin gerðu sér gula kórónu, en það er litur leikskólans og teiknuðu mynd af skólanum sínum. Þá unnu börnin sameiginlegt verkefni tengt umhverfismennt og lífsleikni. Það er hnöttur sem hendur barnanna halda uppi.

Leikskólinn Maríuborg hefur verið Skóli á grænni grein síðustu tvö árin og fögnuðu því langþráðu takmark þegar Grænfáninn blakti þar þann 14. nóvember síðastliðinn. Leikskólinn vinnur með lífsleikni með áherslu á dyggðarkennslu. Jafnan er unnið dyggðina vinsemd á haustin og önnur dyggð valin til að vinna með eftir áramótin og fram á vor. Gildi leikskólans eru Leikur – Samskipti – Námsgleði og er horft til þessara góðu gilda í öllu starfi leikskólans.