Maraþonlestur framhaldsskólanema í Borgarbókasafni
Í tilefni Lestrarhátíðar, sem Reykjavík Bókmenntaborg Unesco stendur fyrir í október, munu framhaldsskólanemar vera með upplestur frá kl. 9 - 21 í söfnum Borgarbókasafns. Lesið verður í tvo tíma í hverju safni og endar lesturinn í aðalsafni kl. 19 - 21. Nemendur munu lesa texta að eigin vali eða í samráði víð kennara sína og má búast við að fjölbreytnin verði mikil. Framhaldsskólanemar og aðrir eru hvattir til að mæta í söfnin og njóta upplestursins og ekki síst á lokalesturinn í aðalsafni kl. 19. Ari Eldjárn lokar svo lestrarmaraþoninu með léttu uppistandi kl. 21.
Dagskrá lestrarmaraþonsins
Borgarholtsskóli
í Foldasafni, Grafarvogskirkju v/Fjörgyn kl. 9 - 11
Menntaskólinn við Sund
í Sólheimasafni, Sólheimum 27, kl. 11 - 13
Fjölbrautarskólinn í Breiðholti
í Gerðubergssafni, Gerðubergi 3-5, kl. 13 - 15
Fjölbrautaskólinn í Ármúla
í Ársafni, Hraunbæ 119, kl. 15 - 17
Verzlunarskóli Íslands
í Kringlusafni, Kringlunni, kl. 17 - 19
Menntaskólinn í Reykjavík
í aðalsafni, Tryggvagötu 15, kl. 19 - 21
Ari Eldjárn verður með uppistand í aðalsafni kl. 21.
Auk ofangreindra framhaldsskóla er maraþonlesturinn í samstarfi við Reykjavík Bókmenntaborg Unesco, Dominos Pizzur og Vífilfell.