Malbikunarframkvæmdir Reykjavík

 Á morgun, fimmtudaginn 12. júlí  verða í gangi viðhaldsframkvæmdir á götum í Reykjavík, ef veður leyfir. Það verður malbikað á Njálsgötu, milli Snorrabrautar og Rauðarárstígs. Byrjað verður um klukkan 9 og götukaflanum lokað um það leyti og hafður lokaður fram eftir hádegi.