ATH: Þessi frétt er eldri en tveggja ára gömul.
Malbikunarframkvæmdir í Reykjavík í dag.
Í dag, miðvikudaginn 16. ágúst verða í gangi viðhaldsframkvæmdir á götum í Reykjavík, ef veður leyfir.
Unnið verður við malbikun á Mímisbrunni, Iðunnartorg. Í beinu framhaldi verður unnið við malbikun á Mímisbrunni, milli Gefjunartorgs og Lambhagavegar. Byrjað verður um klukkan 9 og götuköflunum lokað um það leyti og hafðir lokaðir fram eftir degi.