ATH: Þessi frétt er eldri en tveggja ára gömul.
Malbiksviðgerðir á Skeiðarvogsbrúnni yfir Miklubraut
Í kvöld frá kl. 19.00 - 22.00 verður unnið við malbiksviðgerðir á Skeiðarvogsbrúnni yfir Miklubraut og þarf vegna framkvæmdanna að loka götunni beggja vegna brúarinnar. Frárein frá Skeiðarvogi inn á Miklubraut til austurs verður þó opin.
Beðist er velvirðingar á truflun sem af framkvæmdum kann að stafa, en valinn er sá tími sem umferð er alla jafna lítil.
Verkið er unnið fyrir Reykjavíkurborg af Loftorku Reykjavík ehf.