Lýðræði á 21. öld í Ráðhúsi Reykjavíkur

Innanríkisráðuneytið, Reykjavíkurborg, lýðræðisfélagið Aldan og Umboðsmaður barna standa fyrir ráðstefnunni  LÝÐRÆÐI Á 21. ÖLD sem haldin verður í Ráðhúsi Reykjavíkur, laugardaginn 10. nóvember næstkomandi.  Ráðstefnan stendur frá kl. 10 – 15 en þar verður fjallað um eflingu lýðræðis á Íslandi.

Ögmundur Jónasson, innanríkisráðherra heldur fyrirlesturinn: Lýðræði á nýrri öld: Valdið til fólksins.

Erlendir fyrirlesarar eru m.a. Melisssa Mark-Viverito, borgarfulltrúi  í New York, og Donata Secondo verkefnisstjóri The Participatory Budgeting Project og munu þær fjalla um fjárhagsáætlanagerð með þátttöku íbúa í New York.

Melissa Mark-Viverito hefur verið borgarfulltrúi í New York borg frá 2006 og situr í borgarráði fyrir demókrata. Hún er fyrsta konan af rómönskum uppruna sem er kosin sem fulltrúi 8. svæðis borgarráðs, sem nær m.a. yfir Harlem. Melissa er ein þeirra borgarfulltrúa sem átti frumkvæði að innleiðingu þátttökufjárhagsáætlunargerðar í New York. Hún hefur alla tíð verið virk í samfélagsmálum og stofnaði t.d. samtökin Konurnar í El Barrio, sem styður og hvetur konur til að vera leiðandi á öllum sviðum samfélagsins. Meðal annarra áherslumála hjá henni má nefna baráttu fyrir aðgengi að félagslegu húsnæði. Hún er menntuð í stjórnmálafræði og opinberri stjórnun.

Donata Secondo heldur utan um starf Participatory Budgeting Project í New York borg við innleiðingu þátttökufjárhagsáætlunargerðar. Hún er menntuð í þróunarfræðum og Suður-Ameríku fræðum frá Brown háskóla. Hún hefur unnið fyrir ýmsar rannsóknarstofnanir, þar á meðal Watson Institute, CENDA og CEDEM. Secondo hefur stundað rannsóknir á sviði kvennafræða og alþjóðafræða. Undanfarin ár hefur Donata stundað rannsóknir á útbreiðslu þátttökufjárhagsáætlunargerðar og áhrifum slíkra ferla á félagslegt réttlæti í viðkomandi samfélögum.

Eftir hádegi mun Ellý Katrín Guðmundsdóttir, borgarritari fjalla um íbúalýðræði í Reykjavík og Jón Gnarr borgarstjóri mun fjalla um Betri Reykjavík.

Síðasti hluti ráðstefnunnar fjallar um barna- og ungmennalýðræði. Margrét María Sigurðardóttir, umboðsmaður barna flytur fyrirlesturinn: Börn mega gagnrýna skólann, Unnur Helgadóttir og Ásta Margrét Helgadóttir, frá Ráðgjafahópi umboðsmanns barna halda fyrirlesturinn: Maður þarf ekki að vera orðinn 18 til að hafa skoðun.

Annar góður gestur erlendis frá er Martin Österdal, framkvæmdastjóri LNU, Landsradet for norske barne- og ungdomsorganisasjoner sem mun fjalla um þátttöku barna og kosningar – kosningaaldur og leiðir ungmenna til þáttöku í lýðræðislegu samfélagi.