Lúsíuhátíð að sænskum sið í Vogaskóla

Vogaskóli hefur markað sér sérstöðu í jólaundirbúningnum, en á aðventunni er jafnan haldin þar Lúsíuhátíð samkvæmt sænskri jólahefð. Lúsíudagurinn var haldinn 13. desember og sungu þá nemendur 5. bekkjar fyrir skólafélaga sína, foreldra og starfsfólk. Þá bökuðu nemendur Lúsíubollur í tilefni hátíðarinnar.

Að venju fór Lúsíuhópurinn svo í heimsókn til eldri borgara í Múlabæ og söng og er það í anda hugmyndafræði skólans um að styrkja tengsl skólans við stofnanir og fyrirtæki í grenndarsamfélaginu. Vel var tekið á móti hópnum í Múlabæ eins og jafnan og var nemendur boðið upp á piparkökur og djús.