Lokað í dag - 12. desember frá kl. 14.00 - vegna jarðarfarar

Skrifstofur skipulagsfulltrúa og byggingarfulltrúa verða lokaðar í dag, 12. desember frá kl. 14.00 vegna jarðarfarar.



Kær vinur og samstarfsfélagi Jóhannes Kjarval, arkitekt, er fallinn frá eftir erfið veikindi aðeins 69 ára að aldri. Jóhannes vann hjá borgarskipulagi frá 1980-1986 en var síðan skipulagsstjóri Hafnarfjarðar um nokkurt skeið. Hann kom aftur til starfa hjá Reykjavíkurborg 1. desember 1999 og lauk formlega störfum 1. desember fyrir ári síðan.



Jóhannes var  verkefnisstjóri miðborgar hjá skipulags-og byggingarsviði og hafði yfirumsjón með deiliskipulagsgerð þar auk þess sem hann kom að fjölmörgum málum öðrum á sviði skipulags- og byggingarmála og borgarhönnunar.



Gott var að leita í þekkingarbrunn Jóhannesar.  Hann var einstakur félagi og mikill fjölskyldumaður, en fyrst og fremst góður og vandaður einstaklingur sem mikil eftirsjá er af. Við erum þakklát Jóhannesi fyrir vináttuna, fagmennskuna og dýrmætt samstarf sem aldrei bar skugga á. Hugur okkar er hjá fjölskyldu hans.