Ljósmyndasýningin Bakgarðar Reykjavíkur
Opnuð hefur verið ljósmyndasýning í Ráðhúsi Reykjavíkur sem kallast Bakgarðar Reykjavíkur.
Á sýningunni eru ljósmyndir af nokkrum af fallegustu bakgörðum Reykjavíkur og er hún haldin í tilefni af stofnun Hollvinasamtaka Elliðaárdals. Sumir vilja kalla Elliðaárdal síðasta dalinn í bænum, náttúruperlu sem þurfi að hlúa að og varðveita.
Hópurinn sem stendur að samtökunum telur brýnt að skilgreina betur ytri mörk svæðisins, meðal annars með tilliti til byggðar og ná sátt um vegaframkvæmdir og mannvirki á mörkum svæðisins og innan þess. Nokkrar myndir á sýningunni eru af Elliðaárdal, en jafnframt eru fleiri staðir í Reykjavík myndaðir. Sigurður Kristinn Egilsson tók allar myndir á sýningunni.