Litir blóma í beðum

 

leiðsögn um safndeild í Grasagarðinum á íslenskum safnadegi sunnudaginn 8. júlí kl. 13.00. Í tilefni af íslenska safnadeginum sunnudaginn 8. júlí býður Grasagarðurinn upp á leiðsögn um safndeild fjölæringa. Grasagarðurinn er lifandi safn undir berum himni og í garðinum eru varðveittar um 5000 tegundir plantna í átta safndeildum.

 

Á safnadeginum verður athyglinni beint að litanotkun blóma í beðum en í Grasagarðinum hafa verið útbúin tvö falleg fjölæringabeð með bláblómstrandi plöntum annars vegar og gulblómstrandi hins vegar.

Mæting við aðalinngang garðsins kl. 13.00.

 

þátttaka er ókeypis og allir velkomnir.

Leiðsögn: Ingunn J. Óskarsdóttir garðyrkjufræðingur.