Listasmiðjur með markað á Markúsartorgi

Listasmiðjan á Gylfaflöt og Iðjuberg halda  sameiginlegan markað með handunnar vörur á Markúsartorgi við Gerðuberg.  Þar mun fólk geta kynnt sér það starf sem fram fer í dagþjónustunni  auk þess sem fólk getur skoðað og keypt þær vörur sem þar eru búnar til. Markaðurinn er opinn í þessari viku frá þriðjudegi til fimmtudags klukkan 13 - 15.

Í Iðjubergi er fötluðum einstaklingum á þrítugsaldri og upp úr veitt vinna og dagþjónusta við hæfi, auk þess sem rekin er listasmiðja, þar sem starfsfólk hannar og býr til ýmsan varning, bæði listmuni, fylgihluti, skartgripi, leikföng og fleira. Gylfaflöt er dagþjónusta fyrir fatlaða á aldrinum 16 - 25 ára þar sem megináherslan er lögð á tómstundir auk þess sem rekin er þar umfangsmikil listasmiðja þar sem framleiddir eru m.a. ýmsir munir úr leir.



Opnunarhátíð verður haldinn þriðjudaginn 31. júlí kl. 13.00 á Markúsartorgi þar sem góðir gestir munu sjá um skemmtiatriði og boðið verður upp á léttar veitingar.



Sölusýningin er hluti af verkefninu ,,Biðsvæði - Torg í biðstöðu“, en þar er framtíðarnotkun og möguleikar afmarkaðra svæða til skoðunar. Markmið verkefnisins er að gæða almenningsrými í borginni lífi og hvetja til umhugsunar og umræðu um framtíð þeirra. Sjá nánar undir www.reykjavik.is/bidsvaedi.