Líf og fjör í jólaskóginum

Það var líf og fjör í jólaskóginum um helgina. Jólatónleikar skólahljómsveitar Kópavogs voru vel sóttir en á tónleikunum komu fram tæplega 100 börn á aldrinum 9 - 13 ára og fluttu jólalög sem þau hafa verið að æfa frá því í nóvember. Tríóið Takk flutti einni nokkur jólalög og Léttsveitin lauk svo dagskránni með fallegum söng.



Á sunnudaginn, fylltist jólaskógurinn aftur af lífi, og var boðið upp á piparkökumálun, jólasveinar komu í heimsókn og tilkynnt voru úrslit í piparkökuhúsakeppni Kötlu. Harmonikkufélag Reykjavíkur spilaði svo jólalög og skapaðist skemmtileg stemning í húsinu. Fylgist með því jólaskógurinn býður upp á dagskrá fram að jólum.