Lesum blöðin saman - Let's read the papers!

Langar þig að lesa íslensku blöðin og skilja hvað er að gerast á Íslandi? (English below)

Starfsmaður Borgarbókasafns Reykjavíkur hjálpar þér að:

-lesa blöðin,

-kynnast ýmsum blöðum og netmiðlum,

-leita að fréttum,

-skilja fréttir,

-skilja orðin í fréttunum,

-skilja af hverju þetta er í fréttum.



„Lesum blöðin saman“ er fjölmenningarleg þjónusta sem boðið er upp á í aðalsafni Borgarbókasafns og felst í því að starfsmaður bókasafnsins aðstoðar þátttakendur við að fara yfir helstu fréttir og bendir á það sem er í brennidepli hverju sinni. Þátttakendum eru einnig bent á hvernig hægt er að taka virkan þátt í samfélaginu með því að koma á framfæri greinum og fréttum í íslenska fjölmiðla. Þátttakendum gefst einnig tækifæri til að kynnast þeim mikla fjársjóði sem Borgarbókasafn hefur upp á að bjóða, hitta nýtt fólk og styrkja tengslin.



„Lesum blöðin saman“ er alla fimmtudaga kl. 17.30 á 5. hæð í aðalsafni, Tryggvagötu 15. Allir áhugasamir eru velkomnir og þátttaka er ókeypis.

Upplýsingar á ensku til útprentunar!

Let's read the papers!

Do you want to read the Icelandic newspapers and understand what’s going on in Iceland? Reykjavik City Library invites you to come

and read the newspapers under the guidance of a librarian. This includes:

-reading the newspapers,

-an introduction to different newspapers as well as websites,

-searching for news,

-understanding the words of the news,

-understand why this is in the news.

We will look in the newspapers of today and discuss what's going on. You can also bring news or articles that you would like to understand better. We will read the newspapers in Reykjavík City Library every Thursday at 5pm.

Information to print out!