Leikur einn að hjóla á norðurslóð

Ráðstefnan „Hjólum til framtíðar 2012 - rannsóknir og reynsla“ verður haldin í Iðnó föstudaginn 21. september kl. 9.00 - 16.00. Til landsins koma virtir vísindamenn frá Bretlandi og Finnlandi með áhugaverða fyrirlestra. Einnig verða kynntar niðurstöður innlendra rannsókna sem og dregin fram reynsla einstaklinga, fyrirtækja og sveitarfélaga í að efla hjólreiðar.

Eitt lykilerinda ráðstefnunnar er um rannsókn á hjólreiðum á norðurslóð en hún sýnir að öflugasti hópur hjólreiðamanna í finnsku borginni Oulu er á aldrinum 15 - 25 ára og um 30% þeirra hjóla allt árið um kring í allt að -30° frosti. Á Íslandi hefur þessi hópur lítt verið sýnilegur.

Katrín Jakobsdóttir, menntamálaráðherra, Jón Gnarr, borgarstjóri, og Dr. Ari Kristinn Jónsson, rektor HR, munu ávarpa ráðstefnuna. Þorsteinn Hermannsson, samgönguverkfræðingur, er fundarstjóri.

Hjólafærni á Íslandi og Landssamtök hjólreiðamanna standa fyrir ráðstefnunni í góðri samvinnu við Reykjavíkurborg, Vegagerðina, Embætti landlæknis, Háskóla Íslands, Háskólann í Reykjavík, Ferðamálastofu og fleiri góða aðila. Ráðstefnan er hluti af dagskrá Evrópsku samgönguvikunnar.

Nánari upplýsingar um dagskrá er að finna á vef Hjólafærni http://hjolafaerni.is.