Leikskólar með á kvikmyndahátíð

Átta leikskólar í Reykjavík eru með á kvikmyndahátíðinni RIFF sem nú stendur yfir. Stuttmyndir sem leikskólabörnin gerðu með Pétri Kjærnested voru frumsýndar í Norræna húsinu fyrir skömmu.

Börnin tóku að sögn Péturs þátt í kvikmyndagerðinni af lífi og sál og blönduðu saman leik og hreyfimyndagerð eins og ekkert væri. Það voru aðallega elstu leikskólabörnin, s.s. á Vesturborg og Hagaborg, sem tóku þátt í þessu verkefni sem hefur eflaust kennt þeim margt um leyndardóma frásagnar í lifandi myndum.

Sjá má brot af afrakstri þessarar vinnu á heimasíðu RIFF.