Leikskólabörn skreyta strætó
Myndir eftir leikskólabörn prýða eins og undanfarin ár strætó að utan og innan nú að aðventunni. Börnin í leikskólanum Langholti voru svo lánsöm að fá í morgun strætó og jólasvein í heimsókn, en dregið var úr hópi þeirra leikskóla sem sendu inn teikningar til að skreyta strætisvagnanna.
Elstu börnin í Langholti skreyttu vagninn með ýmsu fallegu sem þau höfðu búið til, en síðan var lagt upp í strætóferð þar sem stórskemmtilegur jólasveinn sagði börnunum sögur og söng með þeim. Þegar strætóferðinni lauk kom jólasveinninn í heimsókn í leikskólann og hélt áfram að skemmta börnunum.
Þetta árlega verkefni strætó hófst í byrjun nóvember og voru undirtektir mjög góðar. 40 leikskólar sendu inn 1091 teikningar frá 4-6 ára börnum.
Hægt er að skoða teikningarnar á vef strætó www.straeto.is/jolamyndir