Kynning á vetrarstarfi Vitatorgs

Kynning á vetrarstarfi félagsmiðstöðvarinnar við Vitatorg, Lindargötu 59, verður haldin fimmtudaginn 20. september kl. 13.30 í vinnustofu á 2. hæð.

Kynnt verða námskeið, opin vinnustofa, prjónaklúbbur, notendaráð o.fl. Einnig mun starfsfólk félagsstarfsins verða á staðnum til skrafs og ráðagerða, hugmyndabanki, myndasýning og spjall.

Boðið verður upp á kaffi, kleinur og tónlist. 

Verið velkomin, starfsfólk Vitatorgs.