Kynning á starfi Vesturreita
Fimmtudaginn 20. september kl. 16.15 verður kynning á starfi félagsmiðstöðvarinnar Vesturreitum á Aflagranda 40. Félagsmiðstöðin er opin öllum aldurshópum og eru íbúar hverfisins hvattir til að mæta og kynna sér málið.
Í miðstöðinni eru ýmis námskeið og hópar. Þar er lítið bókasafn, aðstaða fyrir ung börn og foreldra þeirra, kaffitería, þráðlaust net, opin vinnustofa, margskonar námskeið og viðburðir.Þar er einnig mögulegt að fá aðstoð við að setja saman hópa og námskeið og dyrnar standa ætið opnar fyrir fleiri hugmyndum.
Taktu þátt í vaxandi starfi!
Dagskrá miðstöðvarinnar má finna hér.