KK með tónleika í Viðeyjarstofu

KK heldur tónleika í Viðeyjarstofu fimmtudaginn 12. júlí kl. 20.00. Siglt verður með tónleikagesti frá Skarfabakka kl. 19.15.

KK er löngu orðinn þjóðþekktur tónlistarmaður enda liggja eftir hann ófáar perlur dægurlagamenningar Íslendinga. Hitt vita færri að hann er líka trillukarl og mun sjálfur sjá um að koma sér út í eyju. Þeir sem mæta snemma út í Viðey vegna tónleikanna ættu því að skyggnast út á sundið og fylgjast með bátsferðum. Kannski berast jafnvel tónar frá gítarnum, svona smá upphitun áður en lagt er að landi.

Oft hefur KK spilað með öðrum tónlistarmönnum, má þar nefna KK Band, KK og Ellen, og KK og Magnús Eiríksson en í þetta sinn er söngvarinn og gítarleikarinn KK einn á ferð. KK hefur hlotið fjölda verðlauna, verið kosinn blúsmaður ársins, samið þjóðhátíðarlag fyrir Vestmannaeyinga og svo mætti lengi telja. Eins hefur rithöfundurinn Einar Kárason skráð sögu hans sem ber hið skemmtilega og lýsandi nafn “Þangað sem vindurinn blæs”.

Í Viðeyjarstofu eru ljúffengar veitingar á boðstólnum, tónleikagestir geta notið kvöldverðar fyrir tónleikana og þurfa þá að panta borð í gegnum síma 533 5055 eða netfangið  videyjarstofa@videyjarstofa.is. 

Sigling fyrir matargesti er frá Skarfabakka kl. 18.15.

Aðrir tónleikagestir sigla frá Skarfabakka kl. 19.15.

Miðar seldir á midi.is. Verð fyrir tónleikana og ferjuna er 3.000 kr.